Nokia 3109 classic - Stafræn undirskrift

background image

Stafræn undirskrift

Þú getur búið til stafræna undirskrift með símanum ef SIM-kortið inniheldur öryggiseiningu. Stafræn undirskrift getur jafngilt

því að maður skrifi undir reikning, samning eða annað pappírsskjal.
Þegar nota á stafræna undirskrift er valinn tengill á síðu, t.d. titill bókar sem á að kaupa og verð hennar. Textinn sem skrifa á

undir, hugsanlega upphæðin og dagsetning, birtist.
Athugaðu hvort texti haussins sé

Lesa

og að táknið fyrir stafræna undirskrift

birtist. Ef táknið fyrir stafræna undirskrift

birtist ekki hefur öryggið brugðist og þá skal ekki færa inn neinar persónulegar upplýsingar (eins og PIN fyrir undirskrift).
Til að undirrita textann skaltu fyrst lesa hann allan og velja síðan

Undirrita

. Hugsanlega kemst textinn ekki fyrir á einum skjá.

Því þarf að gæta þess að fletta í gegnum hann allan og lesa hann áður en hann er undirritaður.
Veldu notandavottorðið sem þú vilt nota og sláðu inn PIN fyrir undirskrift. Þá hverfur táknið fyrir stafræna undirskrift og

þjónustan birtir ef til vill staðfestingu á innkaupunum.

19.