
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslum með nýjum möguleikum, bættum aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur
nálgast þessar uppfærslum með forritinu Nokia Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa Nokia
Software Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000 eða XP stýrikerfi, háhraðainternettengingu og
samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Til að fá meiri upplýsingar og til að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu skaltu fara á www.nokia.com/
softwareupdate eða vefsíðu Nokia á þínu svæði.
Ef hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum eru studdar í símkerfinu getur þú einnig beðið um uppfærslur úr tækinu.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum“, bls. 28.
Það að sækja hugbúnaðaruppfærslur getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitu. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
7