Myndataka
Til að nota kyrrmyndatöku velurðu
Valmynd
>
Miðlar
>
Myndavél
eða, ef hreyfimyndataka er virk, flettir til hliðar.
Til að taka landslagsmynd skaltu halda tækinu lárétt. Hægt er að stækka eða minnka myndina með því að ýta á
hljóðstyrkstakkana eða ýta skruntakkanum upp og niður.
Veldu
Mynda
til að taka mynd. Myndirnar eru vistaðar á minniskortinu eða í minni tækisins, ef það er laust.
Veldu
Valkost.
til að stilla
Næturstilling á
ef lýsingin er lítil,
Kveikja á sjálfv.
til að kveikja á sjálfvirkri myndatöku og
Kveikt
á myn.röð
til að taka nokkrar myndir í einu. Í stærstu myndastærð eru 3 myndir teknar í röð. Í öðrum stærðum eru 5 myndir
teknar.
Veldu
Valkost.
>
Stillingar
>
Tími forskoðunar
og forskoðunartíma til að birta myndirnar sem þú tekur. Þegar myndin er á
skjánum geturðu valið
Til baka
til að taka aðra mynd, eða
Senda
til að senda myndina í margmiðlunarskilaboðum.
Þetta tæki styður 1280 x 1024 punkta myndupplausn.