
Sannvottun heilmyndar
1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni
og 'Nokia Original Enhancements' táknið frá öðru.
2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.
R a f h l a ð a
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
41

3. Skafðu hliðina á miðanum og þá á að koma í ljós 20-stafa tala, t.d. 12345678919876543210. Snúðu
rafhlöðunni þannig að tölurnar vísi upp. 20 stafa talan byrjar í efri röðinni og heldur áfram í neðri röðinni.
4. Fáðu staðfestingu á því að 20 stafa talan sé gild með því að fylgja leiðbeiningunum á www.nokia.com/
batterycheck.
Til að búa til textaskilaboð skaltu slá inn 20 stafa töluna, t.d. 12345678919876543210, og senda hana á +44
7786 200276.
Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir. Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er
að sannvotta töluna eða ekki.