Nokia 3109 classic - Sérþjónusta

background image

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir

sérþjónustu. Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu

fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa

takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í

valmynd tækisins. Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan

gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir í símanum, eins og MMS

(margmiðlunarskilaboð), tölvupóst, spjallskilaboð, ytri samstillingu og niðurhal efnis með vafra eða MMS, þarf símkerfisstuðning við viðkomandi

tækni.