
Raddstýrð hringing
Hægt er að hringja með því að segja þau nöfn sem eru vistuð á tengiliðalista tækisins.
Raddskipanir eru háðar tungumáli. Velja þarf
Tungumál raddkennsla
áður en raddval er notað.
Sjá „Sími“, bls. 27.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að
treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
1. Í biðstöðu er hægri valtakkanum eða neðri hljóðstyrkstakkanum haldið inni. Stutt hljóðmerki heyrist og
Tala núna
birtist.
2. Segðu nafn þess sem þú vilt hringja í skýrt og greinilega. Ef síminn ber kennsl á skipunina birtir hann þær færslur sem passa
við hana í lista. Tækið spilar raddskipun færslunnar sem er efst á listanum. Ef hún er ekki rétt skaltu fletta að annarri færslu.
Notkun raddskipana svipar til raddstýrðra hringinga.
Sjá „Raddskipanir“, bls. 25.