Tölvupóstur lesinn og honum svarað
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Tölvupóstboð og margmiðlunarboð geta innihaldið skaðlegan
hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
1. Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
>
Tölvupóstur
>
Innhólf
heiti pósthólfsins og svo póstinn sem þú vilt lesa.
2. Ef svara á tölvupósti skaltu velja
Svara
>
Upphafl. texta
eða
Auðu skeyti
. Hægt er að senda svar á marga aðila með því
að velja
Valkost.
>
Svara öllum
. Staðfestu eða breyttu netfanginu og efninu og skrifaðu síðan svarið.
3. Veldu
Senda
>
Senda núna
til að senda skilaboðin.