Nokia 3109 classic - Öryggi

background image

Öryggi

Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun, lokaður notendahópur og fast númeraval) getur

samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Öryggis-stillingar

og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:

Krefjast PIN-númers

og

Krefjast UPIN-númers

— til að stilla tækið þannig að beðið sé um PIN-númer eða UPIN-númer í

hvert sinn sem kveikt er á tækinu. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að slökkva á beiðni um númerið.

PIN2-beiðni

— til að velja hvort beðið sé um PIN2-númerið þegar tiltekinn valkostur tækisins sem er varinn með PIN2-

númerinu er notaður. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að slökkva á beiðni um númerið.

Útilokunar- þjónusta

— til að loka fyrir símtöl í og úr tækinu (sérþjónusta). Krafist er lykilorðs vegna útilokunar.

Fast númeraval

— til að takmarka úthringingar í valin símanúmer ef SIM-kortið styður aðgerðina. Þegar fast númeraval er

á eru GPRS-tengingar ekki mögulegar nema þegar textaboð eru send um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða símanúmer

viðtakandans og skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á listanum yfir númer í föstu númeravali.

Lokaður notendahópur

— til að tilgreina hóp fólks sem hægt er að hringja í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Öryggisstig

— Veldu

Sími

til að stilla tækið þannig að beðið sé um öryggisnúmer í hvert skipti sem nýtt SIM-kort er sett í

tækið. Ef

Minni

er valið biður tækið um númerið þegar SIM-kortið er valið og þú vilt velja annað minni.

Aðgangslyklar

— til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-númerinu, eða lykilorði útilokunar

Númer í notkun

— til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi að vera virkt

Heimildavottorð

eða

Notandavottorð

— til að skoða lista yfir heimilda- eða notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður

í tækið.

Sjá „Vottorð“, bls. 39.

Stillingar fyrir öryggiseiningu

— til að skoða

Upplýs. um öryggiseiningu

, virkja

Biður um PIN f. öryggiseiningu

eða

breyta PIN fyrir öryggiseiningu eða PIN fyrir undirskrift.

Sjá „Aðgangslyklar“, bls. 7.