
Símtöl
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Símtals-stillingar
og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
•
Símtalsflutningur
— til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki flutt símtöl ef einhver valkostur er virkur
sem útilokar símtöl.
Sjá „Öryggi“, bls. 28.
•
Skýrleiki tals
— Veldu
Virk
til að auka talskilning þegar umhverfishávaði er mikill.
•
Lyklaborðssvar
— Veldu
Virkt
til að svara símtali með því að ýta í stutta stund á hvaða takka sem er, fyrir utan rofann, hægri
og vinstri valtakkana eða hætta-takkann.
•
Sjálfvirkt endurval
— Veldu
Virkt
til að gera að hámarki 10 tilraunir til að koma á sambandi við númerið sem hringt er í.
•
Hraðval
— Veldu
Virkt
til að hringja í nöfn og símanúmer sem tengd eru talnatökkunum 2 til 9 með því að halda viðkomandi
takka inni.
•
Biðþjónusta fyrir símtöl
— Veldu
Virkja
til að símkerfið láti þig vita af innhringingu meðan á öðru símtali stendur
(sérþjónusta).
Sjá „Símtali svarað eða hafnað“, bls. 13.
•
Samantekt eftir símtal
— Veldu
Virk
til að birta í stutta stund upplýsingar um lengd síðasta símtals.
•
Birta upplýsingar um mig
— Veldu
Já
til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt (sérþjónusta). Til að nota stillingarnar
sem þú samþykktir með þjónustuveitunni velurðu
Stillt af símkerfi
.
•
Lína til að hringja
— til að velja símalínu 1 eða 2 til að hringja, ef SIM-kortið styður það (sérþjónusta)