Nokia 3109 classic - Ísetning microSD-korts

background image

Ísetning microSD-korts

Aðeins skal nota samhæf microSD kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla

fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og

tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
1. Slökktu á tækinu, renndu bakhliðinni af því og taktu rafhlöðuna úr því.

T æ k i ð t e k i ð í n o t k u n

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

8

background image

2. Ýttu festingu minniskortsins til að opna hana (1).

3. Opnaðu festinguna (2) og settu minniskortið í hana þannig að snerturnar snúi inn á við (3).

4. Lokaðu festingunni (4) og renndu henni til þar til hún smellur á sinn stað (5).

5. Settu rafhlöðuna í tækið og settu svo bakhlið þess aftur á það.