Nokia 3109 classic - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er

hlaðið orku frá AC-3 eða AC-4 hleðslutækjunum.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu

tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er tekinn úr

sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2. Stingdu snúru hleðslutækisins í samband neðst á tækinu.
Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til

hægt er að hringja.
Hleðslutíminn veltur á því hvaða hleðslutæki er notað. Það tekur um 2 klukkustundir og 45 mínútur að

hlaða BL-5C rafhlöðu með AC-3 hleðslutæki þegar tækið er í biðstöðu.