Nokia 3109 classic - SIM-kortið og rafhlaðan sett í símann

background image

SIM-kortið og rafhlaðan sett í símann

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan eða annar

söluaðili.
Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-5C rafhlöðu. Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia.

Sjá „Leiðbeiningar um sannprófun á

rafhlöðum frá Nokia“, bls. 41.

SIM-kortið og snertiflötur þess geta hæglega skemmst ef kortið rispast eða bognar. Því þarf að fara varlega með kortið þegar

það er sett í símann eða tekið úr honum.
1. Ýttu á sleppitakkann (1) til að losa um og fjarlægja bakhliðina (2). Fjarlægðu

rafhlöðuna eins og sýnt er á myndinni (3).

2. Opnaðu (4) SIM-kortafestinguna. Settu SIM-kortið í (5) þannig að snerturnar snúi

niður í höldunni. Lokaðu raufinni (6).

3. Gættu að snertum rafhlöðunnar (7) og settu rafhlöðuna í (8). Settu efri hluta

bakhliðarinnar á tækið (9) og lokaðu henni (10).