
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og ígrædds
lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í
lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan búnað ættu:
• Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu) fjarlægð frá lækningabúnaðinu þegar kveikt er á þráðlausa
tækinu.
• Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
• Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á truflunum.
• Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á þráðlausa tækinu tafarlaust.
• Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda ígrædda lækningabúnaðarins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við
heilbrigðisstarfsfólk.